Er ekki lágmark að skilja erlenda frétt til að geta skrifað um hana?

 Ákaflega þykir mér brjóstumkennanlegt að lesa þessa "frétt" sem hljómaði sniðuglega en var síðan allt önnur frétt í raunveruleikanum þegar maðurlas hana á CNN iReport.

Í fyrsta lagi er CNN iReport fréttavefur með óstaðfestar fréttir skrifaðar af Pétri og Páli.

Í öðru lagi er ekki talað um að borgarstjórinn hafi verið klæddur eins og gömu kona í dag heldur í gleðigöngunni í fyrra.

Og íþriðja lagi er ekki talað um að hann hafi verið í bíl sem ók aftan við sendiráðið sjálft. Heldur að hann hafi verið í bíl sem ók á eftir starfsmönnum sendiráðsins sem tóku þátt í göngunni.

Vandið þið ykkur við "frétta"flutning annars missið þið algerlega marks.


mbl.is Segir að Jón hafi verið klæddur eins og gömul kona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þú kýst fávita, þá færðu fávita !!

Lýðræðið er skemmtilegur furðufugl. Jón Gnarr er sá sem hann er og hefur legið nokkuð ljóst fyrir hver hann er um árabil. Hefur allavega ekki farið fram hjá mér.

Mér finnst hann stórskemmtilegur, heiðarlegur og einlægur þrátt fyrir að mér finnist hann á sama tíma óttalegur vitleysingur, nánast fáviti. Af hverju í ósköpunum ætti hann að segja af sér og bregðast þar með kjósendum sínum og lýðræðinu. Þetta er það sem kjósendur Besta flokksins vildu kusu og fengu en aðrir vildu eitthvað annað kusu en fengu ekki. Niðurstaðan var þessi og ekkert við því að gera í bili.

 Ef meirihluti fólks ákveður óþvingað í lýðræðislegu kjöri að kjósa fávita til að halda um stjórnartaumana þá fáum við fávita til starfa, það liggur ljóst fyrir.

 Ekki hengja sig of mikið á staðalímyndir. Hann er engum til skammar. Hann er bara doldið öðruvísi. Grin


mbl.is „Ég er og verð óviðeigandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þú kýst fávita, þá færðu fávita !!

 Jón Gnarr er sá sem hann er og hefur legið nokkuð ljost fyrir hver hann er um árabil. Mér finnst hann stórskemmtilegur, heiðarlegur og einlægur þrátt fyrir að mér finnist hann á sama tíma óttalegur vitleysingur. Af hverju í ósköpunum ætti hann að segja af sér og bregðast þar með kjósendum sínum og lýðræðinu.Þetta er það sem kjósendur Besta flokksins vildu aðrir vildu eitthvað annað. En niðurstaðan var þessi og ekkert við því að gera.

 Ef meirihluti fólks ákveður t.d. óþvingað að kjósa fávita til að halda um stjórnartaumana þá fáum við fávita til starfa, það liggur ljóst fyrir.

 Ekki hengja sig of mikið á staðalímyndir. Hann er engum til skammar. Hann er bara doldið öðruvísi. Grin

 


Það er ekki að því að spyrja !

 Þetta er frábær árangur hjá mínum manni. Hann er auðsjáanlega allur að færast í aukana með hverju mótinu. Hann hefur náð niðurskurði á síðustu fjórum mótum og alltaf endar hann ofar og ofar á stöðutöflunni.

 Hann endaði í 118. sæti fyrir fjórum mótum og hefur síðan stighækkað og endaði  í 25. sæti síðast. Hvar endar þetta? Alveg frábært og ég er mjög stolltur.


mbl.is Birgir Leifur: „Er á réttri leið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maskúlínisti/Femínisti - spurning um vatnsgang ?

 Ég held ég sé kominn yfir það að vera argur út í misvitra róttæka femínista sem sífellt skjóta upp kollinum þegar síst skyldi og nú sem aldrei fyrr. Ég held í framhaldinu að ég hafi styrkst enn frekar í baráttu minni fyrir jafnrétti og styrkt mig í þeirri viðleitni að svara fyrir sé verið að gera lítið úr mér og mínum líkum vegna vatnsgangsins. Góður vinur minn sagði "Mér finnst meira máli skipta hvað er á milli eyrnanna á fólki heldur en hvernig vatnsgang það býr yfir."

 Það er svosem búið að ræða nóg um klámblaðið úr Smáralindinni og annan kjánalegan málflutning. En ég datt óvart inn á blogg hjá Sóley Tómasdóttur sem er málsvari rétts vatnsgangs fremur en vel virks toppstykkis. Hún sagði svo sem skilmerkilega, satt og rétt frá að það hefðu verið 8 karlmenn í viðtali hjá öðrum karlmanni nefnilega Agli Helgasyni í umræðuþætti um daginn. Og hún var hissa.

 ÉG er eiginlega hissa á því að hún sé hissa. Manneskjur með þann vatnsgang sem hugnas Sóleyju eru ekki nema um helmingur okkar, og væntanlega hefur hinn helmingurinn líka frá ýmsu að segja. Er þetta nokkuð dýpri speki en það.

EKki vera hissa, við erum svo mismunandi af Guði gerð.


Golf á Íslandi

 Út kom rétt fyrir jólin ákaflega vandað eintak af tímaritinu Golf á Íslandi. Blaðið sem er fimmta tímaritið á liðnu ári er gefið út af Golfsambandi Íslands og er ætlað til útbreiðslu golfs á íslandi og til kynningar á starfi klúbbanna í landinu.

 Á formannafundi GSÍ sem haldinn var í Vestmannaeyjum í nóvember s.l. var mikið rætt um útgáfu þessa tímarits og skiptust menn á skoðunum varðandi útgáfuna sem kostaði Golfsambandið 18,5 milljónir á rekstrarárinu 2006. Tekjur af útgáfunni námu 17,5milljónum króna og var því um 1 milljón sem tapaðist úr sjóðum GSÍ á síðasta ári við útgáfuna. Þetta varð tilefni mikilla umræðna og voru skiptar skoðanir á því að réttlæta mætti útgáfu á tímariti sem fæli í för með sér kostnað enn ekki tekjur. Gjaldkeri Golfsambandsins sté í pontu og fullvissaði fundarmenn að mikið væri búið að ræða útgáfumálin innan stjórnar Golfsambandsins og að áætlanir gerðu ráð fyrir því að á komandi starfsári færi rekstur blaðsins úr 1 milljóna krónu tapi í 8,5 milljóna krónu hagnað, auk þess sem útgáfa golfhandbókarinnar sem frumreynd var á síðasta ári myndi skila 2,5 milljónum í tekjur og vefur golfsambandsins golf.is  muni í fyrsta skipti skila hagnaði sem nemur um 500 þúsund krónum.

 Fram kom í máli gjaldkera að kostnaðurinn við útgáfu blaðsins fylgdi lögmáli breytilegs kostnaðar þar sem fastsett er greiðsla fyrir hverja blaðsíðu sem nemur um 20.000 krónum. Það þýðir að þau 5 tímarit sem útgefin voru á síðasta ári og kostuðu golfsambandið 18,5 milljónir hafi verið um 170 blaðsíður hvert þar sem um 3,7 milljónir kostar að gefa út hvert þeirra. Um hlutverk Golfsambandsins segir að einn þáttur þess sé útgáfu og fræðslumál enda sé GSÍ þjónustustofnun klúbbanna auk þess sem segir í lögum GSÍ um tilgang sambandsins “Að vinna að framgangi golfíþróttarinnar og útbreiðslu hennar á Íslandi” og er ég þá kominn að ástæðu skrifa minna um þetta ágæta tímarit Það kann að fá á einhverja að ég sé yfir höfuð að hafa skoðun á efnistökum blaðsins og er það hverjum í sjálfsvald sett hvort og þá hvernig sú skoðun er. Ég hef reglulega sent fulltrúum blaðsins efni til birtingar í blaðinu bæði umbeðinn og óumbeðinn. Þær umfjallanir hafa yfirleitt endað á síðum blaðanna en þó ekki alltaf. Ég hef furðað mig á því að umfjöllun um íslenskt golf eigi sér ekki stærri sess í blaðinu og eða jafnvel eingöngu. Það eru fjölmörg tímarit sem eru gefin út með reglulegu millibili sem fjalla á einhvern hátt um golfsveifluna, golftæknina, nýjustu tískuna í golfinu, nýjungar í tækjum og tólum, kennsluaðferðir og úttektir á erlendum völlum víðsvegar um heiminn. Mín skoðun er sú að tímarit Golfsambandsins Golf á Íslandi sem kostar 18,5 milljónir á ári að gefa út eigi ekki að sinna þessum þætti, heldur eigi það að einbeita sér að kynningar og útbreiðslustarfi golfíþróttarinnar á Íslandi. Mér finnst það heldur blóðugt að allir þessir fjármunir skuli að stórum hluta fara í golfkennsluþætti eða umfjallanir um hina ýmsu velli erlendis þegar efnistökin eru nægjanleg og jafnvel óþrjótandi hérlendis. Hefur mér blöskrað þegar ég sé greinar sem fjalla um golfsveiflu, stöðu eða grip sem ég hef áður lesið í öðrum tímaritum erlendis frá sem búið er að þýða á íslensku. Á íslandi eru um 60 golfklúbbbar með ámóta marga velli sem hýsa um 14 þúsund kylfinga, auk þeirra sem ekki eru skráðir í golfklúbba en spila þó reglulega en ætla má að í þeim hópi séu á bilinu 5.000 - 7.000 manns. Þetta eru væntanlegir framtíðarkylfingar klúbbanna sem jafnvel eiga eftir að gera það upp við sig hvort og þá í hvaða klúbb þeir gangi þegar þar að kemur. Allir fá þessir kylfiungar blaðið sent sér að kostnaðarlausu til fróðleiks og skemtunar. Ég sé ekki í fljótu bragði að greinar þar sem Retief Goosen reynir að leiðbeina okkur um hvernig við eigum að hitta brautir, Ian Poulter áminnir okkur um mikilvægi nákvæmninnar og margra blaðsíðna umfjallanir um Hoylake völlinn í Liverpool, Doonberg á Írlandi eða Valderrama sé efni sem eigi við í þetta blað sem heitir Golf á Íslandi. Mér finnst að það fjármagn sem notað er af Golfsambandinu til útbreiðslu og kynningarstarfs á hverju ári eigi að nota í það nákvæmlega, þ.e. útbreiðslu og kynningar á golfíþróttinni á Íslandi. Það eigi að skipuleggja kerfisbundið kynningar í þessu góða blaði á öllum þeim 60 golfvöllum sem eru hér um allt land. Mér finnst að það eigi að fjalla um það sem er að gerast í öllum þessum 60 golfklúbbum sem eru hér um allt land. Mér finnst að umfjöllun blaðs eins og Golf á Íslandi eigi að vera eins fjöltæk og eins óhlutdræg og frekast er unnt. Mér finnst hinns vegar oft á tíðum þegar ég les þetta vandaða blað að efnistök séu hinsvegar ákfalega takmörkuð.

 Einhver kann að segja að umfjöllun sé eðli málsins samkvæmt meiri varðandi það sem í gangi er hjá “stóru” klúbbunum á suð-vestur hluta landsins þar sem að þar eru flestir félagsmennirnir. Þetta er langt því frá raunin og alls ekkert eðlilegt heldur, þar sem kynning felst fyrst og fremst í því að kynna fyrir kylfingum það sem ætla má að sé óþekkt en ekki það sem að flestir þekkja. Gott dæmi er síðasta útgáfa Golf á Íslandi þar sem samantektir ársins blasa við lesandanum. Verið er að fara yfir tölfræði kylfinga á KB-bankamótaröðinni og landsliðsfólksins okkar sem virkilega gaman er að skoða og velta fyrir sér árangri allra þessarra snillinga sem keppa.  Þá er farið yfir afkomutölur stærstu klúbbanna eins og GA á Akureyri, GKJ í Mosfellsbænum, GL á Akranesi, GV í Vestmannaeyjum, GR í Reykjavík og GO í Garðabæ. Það sem ég hjó eftir var náttúrulega að ekki nokkurs staðar í þessu annars vandaða tímariti er fjallað um minn ágæta klúbb GKG sem er þó annar fjölmennasti golfklúbbur á íslandi og annar stærsti völlurinn líka með 27 holur til afnota fyrir kylfinga. Ekkert varðandi afkomu klúbbsins sem var þó mun betri en á síðasta ári og ein besta rekstrarlega afkoma í nokkur ár og við ákflega stoltir af því. Stjórnendur annarra klúbba hafa sjálfsagt sömu sögu að segja varðandi umfjöllun um sinn heimaklúbb. Enda kannski ekki annað en eðlilegt þar sem að heimaklúbbur hvers og eins er hans hugðarefni. Fyrir mér ætti tímarit sem Golfsamband Íslands gefur út að sinna því hlutverki sem því er ætlað þ.e. umfjöllun um Golf á Íslandi, af nógu er að taka.


Minn maður á æðstu stöðum

 En og aftur er ég afar stoltur af mínum mönnum hér í GKG. Um daginn var Birgir Leifur í kjöri íþróttamanns ársins og núna er einn af starfsmönnum okkar hjá GKG kominn með æðstu viðurkenningu sem nemi í hans sporum getur öðlast. Einungis einn evrópubúi fær þessa viðurkenningu á ári og gríðarlegur fjöldi sem sækir um. Það eru síðan einn breti, einn skoti og einn íri sem auk Evrópubúans sem eru styrktir með bæði lítilsháttar fjárhæð en þó aðallega viðurkenningunni.

 Svona árangur og svona viðurkenning snertir mann mikið og gerir mann stoltann af sínu starfsfólki og treystir mann í trúnni að maður sé með gott  starfsfólk innan sinna vébanda.

 Ég er sjálfur að stunda nám við sama skóla og Hafliði í Elmwood College í Cupar sem er rétt við St.Andrews, en þó á sviði stjórnunar (e. Club management).


mbl.is Hafliði fékk æðstu viðurkenningu R&A
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður, betri, bestur

Mikið svakalega var ég spenntur þegar Eiður var tilkynntur í annað sætið. Ég var alveg með það á hreinu að minn maður Birgir Leifur Hafþórsson myndi loksins eftir 5 tilraunir hneppa nafnbótina Íþróttamaður ársins 2006.

 En mikið svakalega var ég vonsvikinn og hissa þegar í ljós kom að hann var ekki einu sinni á meðal þriggja efstu. Ég átti ekki til orð, var stórhneykslaður. Síðan náði ég að róa sjálfan mig og kannski einna helst vegna þess að Guðjón Valur er einn af þeim íþróttamönnum sem ég fyllist lotningu yfir þegar ég sé hann spila handbolta. Ég var samt hundfúll og hugsaði með mér hvernig á þessi gæti staðið. Hann hlyti þá að fá uppbótatitilinn á næsta ári ef hann stæði sig  þokkalega á Evróputúrnum eins og Bjarni Júdókappi fékk um árið eftir að hafa ekki fengið titilinn þrátt fyrir árangurinn á Ólympíuleikunum.

 Svo þegar ég sá úrslitin í atkvæðagreiðslunni þá róaðist ég nú aðeins. Sá að Birgir Leifur var næsti maður inn, var svona hálfgerður flakkari og hefði komist inn í baráttusætið með örfáum atkvæðum í viðbót.

 Ég hlakka til að fara á herrakvöldið á morgun með góðum félögum í góðra vina hóp með Birgi Leifi og óska honum til hamingju með glæsilega kosningu.


mbl.is Guðjón Valur íþróttamaður ársins 2006
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband