28.12.2006 | 22:55
Góður, betri, bestur
Mikið svakalega var ég spenntur þegar Eiður var tilkynntur í annað sætið. Ég var alveg með það á hreinu að minn maður Birgir Leifur Hafþórsson myndi loksins eftir 5 tilraunir hneppa nafnbótina Íþróttamaður ársins 2006.
En mikið svakalega var ég vonsvikinn og hissa þegar í ljós kom að hann var ekki einu sinni á meðal þriggja efstu. Ég átti ekki til orð, var stórhneykslaður. Síðan náði ég að róa sjálfan mig og kannski einna helst vegna þess að Guðjón Valur er einn af þeim íþróttamönnum sem ég fyllist lotningu yfir þegar ég sé hann spila handbolta. Ég var samt hundfúll og hugsaði með mér hvernig á þessi gæti staðið. Hann hlyti þá að fá uppbótatitilinn á næsta ári ef hann stæði sig þokkalega á Evróputúrnum eins og Bjarni Júdókappi fékk um árið eftir að hafa ekki fengið titilinn þrátt fyrir árangurinn á Ólympíuleikunum.
Svo þegar ég sá úrslitin í atkvæðagreiðslunni þá róaðist ég nú aðeins. Sá að Birgir Leifur var næsti maður inn, var svona hálfgerður flakkari og hefði komist inn í baráttusætið með örfáum atkvæðum í viðbót.
Ég hlakka til að fara á herrakvöldið á morgun með góðum félögum í góðra vina hóp með Birgi Leifi og óska honum til hamingju með glæsilega kosningu.
|
Guðjón Valur íþróttamaður ársins 2006 |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


birgirleifur
davidj
lara
nafnlausu
refurinn
golf
viggo

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.